01.11.26 - 14:33
Brynjar Ingi Erluson
Ten Hag heldur áfram að hnýta í Ronaldo

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Erik ten Hag, fyrrum stjóri Manchester United, mætti í viðtal hjá ESPN í Hollandi þar sem hann ræddi meðal annars samband sitt við Cristiano Ronaldo.

TENGT EFNI
Ten Hag: Ronaldo brást mér og liðinu
Ronaldo og Ten Hag áttu ekki gott samstarf hjá Manchester United og á endanum ákvað Portúgalinn að yfirgefa félagið vegna framkomu hollenska stjórans í sinn garð.
Ten Hag sagði í viðtali við Athletic að Ronaldo hefði ekki lagt nægilega mikið á sig á æfingum og gagnrýndi viðhorf hans harðlega. Hann fór enn betur yfir málið í viðtali við ESPN.
Þar gekk hann svo langt að segja að Ronaldo hefði í raun verið búinn á því þegar hann gekk til liðs við Juventus og að Real Madrid hefði losað sig við hann á nákvæmlega réttum tíma.
„Öll topplið verða að taka svona stórstjörnum opnum örmum, en þær verða líka að leggja sitt af mörkum fyrir liðið og það var einmitt vandamálið með Ronaldo.“
„Þeir voru tilbúnir að leggja mikið á sig fyrir Ronaldo og litu mjög upp til hans. En ekki misskilja mig, hann er auðvitað stórkostlegur leikmaður og einn sá besti allra tíma. Raunveruleikinn er hins vegar sá að hann hefur ekki verið að skila neinu í sjö eða átta ár. Eftir að hann fór til Juventus var þetta búið.“
„Það frábæra við Real Madrid er að félagið veit alltaf hvenær rétti tíminn er til að kveðja leikmenn. Þeir sjá þegar leikmenn eru farnir að dala og því losa þeir sig við þá á réttum tíma. Utan frá virðast þessir leikmenn enn vera upp á sitt allra besta, en þeir geta einfaldlega ekki lengur staðið undir kröfunum á þessu stigi fótboltans,“ sagði Ten Hag.
Ten Hag útskýrði einnig að hann hefði strax gert Ronaldo grein fyrir því hvernig hann vildi að United spilaði og hvaða hlutverki Portúgalinn ætti að gegna í liðinu.
„Þegar ég tók við United útskýrði ég fyrir honum hvernig við ætluðum að spila, hvert hlutverk hans yrði, hvers ég vænti af honum og hvers hann gæti vænst af mér og liðinu. En á sama tíma þurfti hann auðvitað sjálfur að leggja sitt af mörkum.“
„Hann gat einfaldlega ekki fengið sig til að ganga í gegnum þann sársauka sem fylgir því að gefa allt í þetta á hverjum einasta degi, æfa af fullum krafti og halda sér í toppformi. Ef þú ert ekki í formi í ensku úrvalsdeildinni, Meistaradeildinni eða með portúgalska landsliðinu, þá áttu ekki möguleika.“
Ronaldo hefur lengi verið talinn ein helsta fyrirmyndin í fótboltanum þegar kemur að metnaði, líkamlegu formi og aga utan vallar. Ummæli Ten Hag vekja því talsverða athygli, en hann segir að staðan hafi einfaldlega verið önnur þegar þeir störfuðu saman hjá United.
„Þetta er auðvitað ímyndin sem hann hefur skapað sér og ástæðan fyrir því að hann varð svona góður. En hann gat þetta ekki lengur. Ef þú getur ekki lagt þetta á þig mun enska úrvalsdeildin ekki sýna þér neina miskunn,“ sagði hann ennfremur.
Ten Hag tók þó fram að hann hefði fylgst með Ronaldo í gegnum ferilinn og að Portúgalinn væri stórkostlegur fótboltamaður. Hann lagði hins vegar áherslu á að enginn leikmaður væri stærri en félagið og sagði það sama eiga við um Lionel Messi.
Á sama tíma hrósaði hann Messi fyrir framlag hans til argentínska landsliðsins og sagði Argentínumanninn hafa lagt sitt af mörkum til að þakka liðsfélögum sínum fyrir að hlaupa og leggja á sig fyrir hans hönd.

Erik ten Hag snoeihard over Cristiano Ronaldo????
— ESPN NL (@ESPNnl) November 1, 2026
"Hij levert al 7 of 8 jaar niet meer. Vanaf Juventus was het klaar."
???? https://t.co/fDUax22opZ https://t.co/Zfqc6UKlNZ

Mynd: EPA

Mynd: EPA