Fotbolti.net
01.12.22 - 21:25
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Töpuðu Spánverjar viljandi? - „Við gætum auðvitað tekið árabátinn"

Töpuðu Spánverjar viljandi? - „Við gætum auðvitað tekið árabátinn"
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Netgíró

Japan vann E-riðil með mögnuðum sigri á Spáni. Spánn var marki yfir í hálfleik en missti forystuna á þriggja mínútna kafla í upphafi síðari hálfleik.

Spánn endar í öðru sæti og mætir Marokkó í 16 liða úrslitum á meðan Japan fær Króatíu.

Einhverjir eru með samsæriskenningar um það að Spánn hafi kosið að tapa leiknum í dag til að mæta lakari andstæðingum á leið sinni í úrslitaleikinn. Spánverjar spiluðu boltanum mikið sín á milli en ekki var mikið bit í sóknaraðgerðunum.

Helga Margrét Höskuldsdóttir var með Arnar Gunnlaugsson, Heimi Hallgrímsson og Gunnar Birgison í settinu í HM stofunni á Rúv eftir leikinn.

Gunnar fór yfir skemmtilega myndlíkingu á mögulegum hugsunarhætti Spánverja.

„Segjum að við fjögur værum að fara á Þjóðhátíð, við gætum auðvitað tekið árabátinn og kæmumst yfir á endanum myndi ég halda. Við gætum líka bara tekið Herjólf. Þetta er bara nákvæmlega það; Þú hlítur að vilja fá Marokkó og Portúgal frekar en Króatíu og Brasilíu," sagði Gunnar.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.