Joe Cole virðist vera að ganga í raðir West Ham á ný en samkvæmt heimildum Sky Sports er hann í læknisskoðun hjá félaginu núna.
Cole hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann gekk í raðir Liverpool og lítið getað í búningi félagsins.
Cole hefur ekki átt sjö dagana sæla síðan hann gekk í raðir Liverpool og lítið getað í búningi félagsins.
Cole er 31 árs en hann gekk upp úr unglingastarfi West Ham og var talinn einn efnilegasti leikmaður Bretlandseyja á sínum tíma. Hann náði aldrei þeim hæðum sem spáð var.
Hann var einnig orðaður við Reading oh QPR en nú virðast Hamrarnir vera að tryggja sér þjónustu hans.
Athugasemdir