Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   mán 02. janúar 2023 05:55
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England í dag - Fer Liverpool upp í Evrópusæti?
Mynd: Getty Images

Veislan í enska boltanum á nýja árinu heldur áfram en í kvöld er einn leikur þar sem Brentford fær Liverpool í heimsókn.


Bæði lið hafa verið á góðu skriði að undanförnu en Brentford hefur ekki tapað í fimm síðustu leikjum sínum í deildinni og Liverpool hefur unnið fjóra leiki í röð.

Ivan Toney framherji Brentford er í veseni eftir að upp komst um brot hans á veðmálareglum deildarinnar og gæti hann átti yfir höfði sér langt bann. Það er ekki búið að ákveða það og á meðan spilar hann og hann hefur skorað í báðum leikjunum eftir HM hléið.

Brentford verður hins vegar án hans í kvöld þar sem hann meiddist á hnéi í sigrinum gegn West Ham í síðustu umferð.

Liverpool vann mjög ósannfærandi sigur á Leicester þar sem Wout Faes skoraði tvö sjálfsmörk sem færði Liverpool 2-1 sigur.

ENGLAND: Premier League
17:30 Brentford - Liverpool


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner