Draumastarfið það eina sem hefði getað fengið Jón Þór frá Vestra
Auglýsing

Þetta kom óvænt upp, þetta var svolítill rússíbani og það gerði hlutina erfiða

Mynd: Fótbolti.net - Jónína Guðjörg Guðbjartsdóttir

Kominn í draumastarfið

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„,Nei, aldrei. Það hefði aldrei komið til greina, ekki á þessum tímapunkti."
Jón Þór Hauksson var ráðinn þjálfari ÍA á sunnudag. Hann tók við sem þjálfari Vestra um mitt síðasta sumar en Vestri og ÍA náðu samkomulagi sín á milli og Jón Þór gat tekið við uppeldisfélaginu. Hann þekkir ágætlega til hjá félaginu því hann stýrði liðinu í lokaleikjunum tímabilið 2017.
Jón Þór ræddi við Fótbolta.net í dag og má viðtalið í heild sjá í spilaranum að ofan.

„Mér líst gríðarlega vel á þetta, hitti leikmannahópinn í fyrsta skiptið í gær og þetta er komið í gang. Við byrjum bara á fullri ferð og bætum svo í þaðan. Þetta er draumastarfið, ég bý á Akranesi, er fæddur þar og þetta er og hefur alltaf verið mitt félag. Þetta er auðvitað draumur að rætast hjá mér en þetta er ærið verkefni og af nógu að taka," sagði Jón Þór.
„Þetta kemur á óvenjulegum tíma og bar brátt að, það er margt sem þarf að skoða og gera á tiltölulega stuttum tíma. Núna erum við að sigla í lokakaflann á undirbúningstímabilinu, það er stutt í alvöruna og í fyrsta sinn í sögunni eru 27 leikir. Það er spennandi knattspyrnusumar framundan og ég held að það verði stórskemmtilegt líka,"
„Það var erfitt að kveðja Vestra, mér og fjölskyldunni leið gríðarlega vel þar. Það er mjög vel haldið utan um liðið, liðið er gott, það gekk vel og margir stórir sigrar. Þetta kom óvænt upp, þetta var svolítill rússíbani og það gerði hlutina erfiða. Svona er þetta, þessi ákvörðun var tekin og ég er gríðarlega þakklátur fólkinu fyrir vestan hvernig var staðið að þeim málum og á sama tíma mjög stoltur af því að hafa fengið þetta tækifæri núna með ÍA."
Jón Þór var settur í smá ef og hefði leik, dæmið sett þannig upp að eitthvað að toppliðunum í efstu deild hefði reynt að fá hann frá Vestra. Hefði hann farið frá Vestra fyrir eitthvað annað en ÍA?
„Nei, aldrei. Það hefði aldrei komið til greina, ekki á þessum tímapunkti. Það er aldrei hægt að segja svona en nei, þetta er auðvitað mjög sérstakt fyrir mig og ég trúi því ekki að ég hefði skoðað hlutina ef eitthvað annað hefði verið upp á teningnum. ÍA kemur kallandi, við búum þarna fjölskyldan, erum Skagamenn í húð og hár og á endanum var þessi ákvörðun tekin."
Jón Þór var einnig spurður út í sig sem þjálfara og muninn á sér og Jóa Kalla sem þjálfaði ÍA síðustu ár. Hann var þá spurður út í leikmannahópinn, hvernig það verður að þjálfa leikmenn sem hann gagnrýndi sem sérfræðingur Stöð 2 Sport í fyrra og viðskilnaðinn við ÍA árið 2017.