lau 02. maí 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Steven Nzonzi hjá Rennes út næstu leiktíð (Staðfest)
Mynd: Getty Images
AS Roma og Rennes hafa komist að samkomulagi um að franski miðjumaðurinn Steven Nzonzi muni leika að láni hjá Rennes út næstu leiktíð.

Nzonzi er 31 árs miðjumaður sem var partur af hópi Frakka sem vann HM 2018 í Rússlandi.

Nzonzi kemur inn í skemmtilegt lið Rennes sem mun spila í Meistaradeild Evrópu í fyrsta sinn á næstu leiktíð.

Hann var síðast á láni hjá Galatasaray og hefur einnig spilað fyrir Sevilla, Stoke City, Blackburn og Amiens á ferlinum.

Roma borgaði tæpar 30 milljónir evra fyrir Nzonzi sumarið 2018 en hann passaði ekki í leikkerfið og á sér ekki framtíð hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner