02.06.13 - 21:12
Magnús Már Einarsson
Þorvaldur hættur með Fram (Staðfest)

Þorvaldur Örlygsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Þorvaldur Örlygsson er hættur sem þjálfari Fram en þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá félaginu í kvöld.
,,Þorvaldur Örlygsson þjálfari úrvalsdeildarliðs Fram í knattspyrnu hefur farið fram á það við stjórn knattspyrnudeildar að vera leystur frá störfum. Stjórnin hefur orðið við ósk Þorvaldar og hefur samkomulag um starfslok hans þegar verið undirritað,\" segir í fréttatilkynningunni frá Fram.
,,Þorvaldur Örlygsson tók við þjálfun Fram haustið 2007. Á fyrsta tímabili sínum með liðið skilaði hann því í 3. sæti og í evrópukeppni og árið eftir í bikarúrslit. Þorvaldur hefur unnið gott starf fyrir Fram undanfarin fimm og hálft ár og fyrir það er félagið þakklátt.\"
,,Fram þakkar Þorvaldi ánægjulegt samstarf og óskar honum og fjölskyldu hans velfarnaðar. Þorvaldur Örlygsson þakkar samstarfsfólki sínu hjá félaginu og öðrum Frömurum fyrir undangengin ár og óskar Fram góðs gengis í framtíðinni,\" segir einnig í fréttatilkynningunni.
Ráðning eftirmanns Þorvaldar verður kynnt á næstu dögum en næsti leikur Fram í Pepsi-deildinni er gegn Keflavík mánudaginn 10. júní næstkomandi.
Framarar eru með fimm stig í áttunda sæti Pepsi-deildarinnar að loknum fimm umferðum en liðið sigraði Val 2-1 í 32-liða úrslitum Borgunarbikarsins á fimmtudag í síðasta leik Þorvaldar.