Fyrsta tap ÍA á deildartímabilinu leit dagsins ljós í dag. Skagamenn töpuðu 3-2 fyrir ÍBV eftir að hafa komist yfir snemma leiks í Vestmannaeyjum.
„Það eru gríðarlega mikil vonbrigði að hafa tapað þessum leik í dag. Við áttum bara vondan dag, við áttum ekki mikið skilið úr þessum leik," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson, þjálfari ÍA.
„Það er karakter í þessu ÍBV liði og þeir eru með öfluga leikmenn þarna inn á milli en það vorum fyrst og fremst við sem komum þeim inn í leikinn. Það er virkilega erfitt að taka þessu tapi en við þurfum að horfa fram á veginn."
Skagamenn voru manni fleiri allan síðari hálfleikinn eftir að Diogo Coelho fékk beint rautt spjald skömmu fyrir leikhlé. Jóhannes Karl blandaði sér í átökin og uppskar gult spjald.
„Mér fannst þetta vera virkilega hættulegur olnbogi, beint í hausinn á Halli Flosasyni. Mér fannst það alltaf vera rautt spjald."
Athugasemdir























