Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 02. júní 2022 22:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kári skaut á Albert - „Þarna ertu með svarið"
Albert Guðmundsson.
Albert Guðmundsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það vakti athygli að Albert Guðmundsson var ekki í byrjunarliði Íslands gegn Ísrael í Þjóðadeildinni í kvöld.

„Maður velur kannski aðra styrkleika meira en þá sem Albert hefur fyrir þennan leik," sagði Arnar Þór Viðarsson áður en flautað var til leiks.

Lestu um leikinn: Ísrael 2 -  2 Ísland

Albert kom inn á sem varamaður í síðari hálfleik en Kári Árnason skaut á það hvernig Albert kom inn í leikinn er hann fór yfir málin á Viaplay þegar búið var að flauta af.

„Albert er að spyrja sig af hverju hann er ekki í byrjunarliðinu. Þarna ertu bara með svarið," sagði Kári þegar rúllað var yfir myndbrot úr leiknum.

Í myndbrotinu sést þegar Albert fer af hálfum hug í einvígi um boltann.

Albert er frábær á boltanum og þar liggja hans styrkleikar, ekki kannski varnarlega eða í einvígum út á velli.
Athugasemdir
banner
banner