Sæti 32 til 29
Við höldum áfram að hita upp fyrir HM sem fer fram í Bandaríkjunum, Kanada og Mexíkó í sumar. Spennan er heldur betur farin að magnast fyrir þessum viðburði sem verður mögulega sá stærsti í íþróttasögunni.
Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.
Núna er komið að þeim liðum sem við erum með í sætum 32 til 29 í þessari kraftröðun.
Það mæta 48 lið til leiks en við á Fótbolta.net kynnum liðin til leiks í sérstakri kraftröðun (e. power rankings) þar sem við röðum liðunum niður frá því slakasta til hins besta. Við tökum fjögur lið fyrir í hverri frétt fram að móti og kynnum við liðin aðeins til sögunnar. Við höldum svo áfram kraftröðuninni á meðan mótinu stendur.
Núna er komið að þeim liðum sem við erum með í sætum 32 til 29 í þessari kraftröðun.
32. Alsír
Eru í 28. sæti á heimslistanum.
Alsír gæti verið eitt mesta spurningamerki mótsins, og það á jafnvel við fyrir þeirra eigið fólk líka. Þetta er lið með gríðarlega tæknilega hæfileika um allan völl, svo mikið að Marcelo Bielsa, sá mikli hugsuður, sagði nýlega eftir vináttuleik gegn Alsír að „Alsíringar væru tæknilegri en Englendingar.“ Þegar horft er á leikmenn á borð við Riyad Mahrez, Rayan Aït-Nouri, Ibrahim Maza eða Amine Gouiri með boltann virðist sú fullyrðing ekki alveg út úr kortinu. Alsír komst nokkuð örugglega í gegnum undankeppnina undir stjórn Vladimir Petkovic, fyrrum landsliðsþjálfara Sviss til margra ára, án þess að vera sérstaklega sannfærandi. Sóknarlínan lítur vel út á pappír og reynslan er til staðar, en varnarleikurinn vekur upp spurningar. Það sást kannski best í Afríkukeppninni 2025 þegar Nígería lagði Alsír í átta liða úrslitunum. Riyad Mahrez er enn leiðtoginn og stærsta nafnið í hópnum, þó ný kynslóð sóknarmanna sé farin að banka fast á dyrnar. Riðill með Austurríki og Argentínu verður ekkert einfalt verkefni, en Alsír ætti samt að líta á sæti í útsláttarkeppninni sem raunhæft markmið. Spurningin er hvað gerist eftir það. Hæfileikarnir eru til staðar en jafnvægið í liðinu er enn dálítið óljóst.
Þjálfarinn: Vladimir Petkovi? hefur stýrt Alsír síðan 2024 og kemur með mikla stórmótareynslu inn í hópinn. Bosníski Svisslendingurinn er þekktastur fyrir tíma sinn með Sviss, sem hann fór með ítrekað á stórmót og alla leið í átta liða úrslit EM 2021 eftir dramatískan sigur á Frakklandi. Petkovic hefur reynt að byggja upp skipulagðara og agaðra Alsír-lið án þess að kæfa tæknina sem einkennir leikmannahópinn.
Lykilmaður: Riyad Mahrez (Al-Ahli) er enn andlit alsírska landsliðsins þrátt fyrir að vera ekki lengur í enska boltanum þar sem hann vann fjölda titla með bæði Leicester og Manchester City. Mahrez, sem spilar í dag í Sádi-Arabíu, heldur áfram að vera skapandi miðpunktur sóknarleiksins með hæfileikann til að skapa eitthvað úr engu. Núna, 35 ára gamall, gæti þetta vel orðið eitt af síðustu stórmótum hans með þjóðinni.
Gaman að fylgjast með: Luca Zidane (Granada) er eitt áhugaverðasta nafnið í alsírska hópnum. Sonur Zinedine Zidane hefur farið sínar eigin leiðir sem markvörður og virðist ætla að verða fyrsti kostur Alsír á HM. Það eitt að sjá „Zidane“ í marki Alsír á heimsmeistaramóti verður líklega nóg til að vekja forvitni hjá ansi mörgum fótboltaáhugamönnum. Svo er Ibrahim Maza líka mjög spennandi leikmaður en hann spilar með Bayer Leverkusen í Þýskalandi.
Leikir á HM: Argentína í Kansas City (16. júní); Jórdanía í San Francisco (22. júní); Austurríki í Kansas City (27. júní).
31. Paragvæ
Eru í 40. sæti á heimslistanum.
Paragvæ er loksins komið aftur á HM eftir langt hlé, í fyrsta sinn síðan 2010 þegar La Albirroja komst alla leið í 8-liða úrslit áður en Spánn stöðvaði ævintýrið. Síðan þá hefur þjóðin verið fjarri stærsta sviðinu, en þetta lið snýr nú aftur með ákveðna von um að geta aftur orðið erfiður andstæðingur sem enginn nýtur þess að spila gegn. Leiðin á HM hefur þó verið misjöfn. Undankeppnin einkenndist af þéttu og varnarsinnaðu liði sem fékk fá mörk á sig, en skoraði líka lítið sjálft. Paragvæ getur bæði unnið Grikkland og verið betra liðið í tapi gegn Marokkó. Það segir nokkuð um ósamræmi sem hefur einkennt leik liðsins. Gustavo Alfaro hefur komið inn með ákveðna stefnu, að gera Paragvæ að þéttum, erfiðum og pirrandi andstæðingi að spila gegn. Þetta verður ekki fallegasti fótboltinn á mótinu, en markmiðið er einfalt, að lifa af leiki og gera þá leiðinlega fyrir hina. Riðill með Bandaríkjunum, Tyrklandi og Ástralíu er líklega ekki að fara að breyta þeirri nálgun. Paragvæ mun ekki fá mikið pláss, en vonast til að nýta hvert tækifæri sem kemur.
Þjálfarinn: Gustavo Alfaro hefur byggt upp orðspor sem þjálfari sem fær lið til að verjast skipulega og fara langt á aga og taktískri skynsemi. Argentínumaðurinn stýrði meðal annars Ekvador á HM 2022 þar sem liðið var mjög erfiður andstæðingur og tapaði naumlega fyrir Senegal í riðlinum. Alfaro hefur haldið áfram á sömu braut með Paragvæ. Skipulag, barátta og engin tilviljun.
Lykilmaður: Miguel Almirón (Atlanta United) er helsta stjarna Paragvæ. Hann spilaði með Newcastle frá 2019 til 2025 og átti góðan tíma þar en hann leikur núna með Atlanta í Bandaríkjunum og er í dag einn öflugasti leikmaður MLS-deildarinnar. Þegar Paragvæ þarf að brjóta upp leik er það oft Almirón sem þarf að gera gæfumuninn.
Gaman að fylgjast með: Julio Enciso (Strasbourg) er leikmaðurinn sem getur breytt stemningunni í þessu liði. Ungi framherjinn er tæknilega sterkur, ófyrirsjáanlegur og með mikið sjálfstraust þrátt fyrir ungan aldur. Ef Paragvæ ætlar að gera eitthvað á mótinu í sumar gæti Enciso verið lykillinn að því.
Leikir á HM: Bandaríkin í Los Angeles (12. júní); Tyrkland í San Francisco (19. júní); Ástralía í San Francisco (25. júní).
30. Suður-Kórea
Eru í 25. sæti á heimslistanum.
Suður-Kórea kemur inn á HM með blöndu af væntingum og óvissu. Þetta er enn eitt sterkasta landslið Asíu á pappír, en undirbúningurinn hefur verið misjafn og síðustu leikir vakið fleiri spurningar en svör. Að tapa 4-0 gegn Fílabeinsströndinni setti strax tóninn og 1-0 tap gegn Austurríki gerði lítið til að róa gagnrýnina heima fyrir. Hong Myung-bo er aftur við stjórnvölinn, eftir að hafa stýrt liðinu á ömurlega 2014 móti, og hefur reynt að setja upp nýtt kerfi, þar á meðal þriggja manna vörn sem margir leikmenn virðast ekki alveg hafa vanist. Það hefur skapað ákveðna óvissu, bæði í varnarleik og uppspili, og jafnvel farið að heyrast spurningar um hvort Son Heung-min eigi sjálfgefið sæti í byrjunarliðinu, eitthvað sem hefði verið óhugsandi þar til nýlega. Samt er þetta lið sem getur alltaf gert hluti þegar allt smellur saman. Riðillinn er viðráðanlegur á pappír og ef lykilmenn finna sitt besta form getur Suður-Kórea vel farið langt, eins og þjóðin hefur áður gert á stórmóti, sérstaklega þegar horft er til baka á HM 2002 á heimavelli. Stóra spurningin er hins vegar ekki hvort hæfileikarnir séu til staðar, heldur hvort þeir nái að virka saman á réttum tíma.
Þjálfarinn: Hong Myung-bo er ein stærsta goðsögn í sögu suður-kóresks fótbolta; fyrirliði liðsins sem fór alla leið í undanúrslit á HM 2002. Sem þjálfari hefur hann hins vegar átt misjafnan feril og snýr nú aftur á stærsta sviðið með það verkefni að sameina reynslu og nýja kynslóð í samkeppnishæft HM-lið. Hann stýrði liðinu á HM 2014 og þá vannst ekki leikur en fær núna annað tækifæri.
Lykilmaður: Son Heung-min (Los Angeles FC) er andlit liðsins, er það enn. Fyrrum fyrirliði Tottenham og einn besti leikmaður Asíu síðustu ára er enn sá sem Suður-Kórea treystir á mikilvæg augnablik koma upp. Gæðin og reynslan á stærsta sviði gera hann að lykilmanni Suður-Kóreu, jafnvel þegar spurningar eru farnar að vakna um hlutverk hans.
Gaman að fylgjast með: Lee Kang-in (Paris Saint-Germain) er leikmaður sem gæti tekið Suður-Kóreu upp á næsta stig í keppninni sem er framundan. Sóknarsinnaði miðjumaðurinn hjá Paris Saint-Germain er tæknilega mjög sterkur, skapandi og ófyrirsjáanlegur með boltann. Ef hann nær að tengja leik Suður-Kóreu saman gæti hann orðið einn mest spennandi leikmaður mótsins.
Leikir á HM: Tékkland í Guadalajara (11. júní); Mexíkó í Guadalajara (18. júní); Suður-Afríka í Monterrey (24. júní).
29. Kanada
Eru í 30. sæti á heimslistanum.
Kanada kemur á sitt annað heimsmeistaramót í röð og í þetta sinn með allt annað sjálfstraust en árið 2022. Þá fór liðið út úr mótinu án stiga, en núna er tilfinningin sú að heimavöllurinn og betri leikmannahópur gæti gert miklu meira en síðast. Undankeppnin og undirbúningurinn hefur gefið af sér töluvert blendnar tilfinningar. Tvö jafntefli í mars, 2-2 gegn okkur Íslendingum, þar sem Orri Steinn Óskarsson fór hamförum, og 0-0 gegn Túnis sögðu ákveðna sögu: Þetta er lið sem getur snúið leikjum, en á líka til að missa stjórn á þeim. Að leikmenn séu að fá rauða spjaldið hefur orðið óþægilega algengt vandamál þar sem Kanada hefur lokið þremur leikjum í röð manni færri. Stærsta spurningin fyrir mótið er þó líkamlegt ástand Alphonso Davies. Meiðsli í aftanverðu læri settu strik í reikninginn í þessum landsleikjaglugga í mars og Bayern München maðurinn er sá leikmaður sem getur hækkað ránna fyrir þetta lið allverulega. Með Jesse Marsch við stjórnvölinn er Kanada orðið beinskeyttara, áræðnara og miklu aggressívara lið en áður. Riðill með Sviss og fleiri sterkum þjóðum verður krefjandi, en með heimavöllinn og meiri reynslu en 2022 er þetta lið sem trúir því að það eigi að geta gert betur, og jafnvel komið á óvart.
Þjálfarinn: Jesse Marsch hefur fært Kanada yfir í hraðara og ákafara leikskipulag. Þessi fyrrum stjóri Leeds United, RB Leipzig og New York Red Bulls er þekktur fyrir hápressu og mikla orku, og hefur reynt að móta Kanada í lið sem spilar með meiri ákefð og meiri trú á eigin styrk. Getur Bandaríkjamaðurinn látið drauma Kanadamanna rætast?
Lykilmaður: Alphonso Davies (Bayern München) er stærsta stjarna Kanada og lykilmaður liðsins. Bakvörðurinn, sem getur einnig spilað sem kantmaður er einn fljótasti leikmaður heims og getur breytt leikjum upp á eigin spýtur. Ef hann er heill er Kanada allt annað lið en það er spurning með heilsu hans og það er óþægileg tilfinning fyrir Kandabúa.
Gaman að fylgjast með: Jonathan David (Juventus) er maðurinn sem á að leiða sóknarleik Kanada og er næst stærsta nafnið í hópnum á eftir Davies. Framherjinn er yfirvegaður, klínískur og með gott auga fyrir markinu, og hefur ítrekað skorað mikilvæg mörk fyrir landsliðið. Ef Kanada ætlar að fara í gegnum riðilinn mun mikið hvíla á hans frammistöðu.
Leikir á HM: Bosnía og Hersegóvína í Toronto (12. júní); Katar í Vancouver (18. júní); Sviss í Vancouver (24. júní).
28.05.2026 17:10
Kraftröðunin fyrir HM: Fyrrum aðstoðarmaður Sir Alex mætir
29.05.2026 18:00
Kraftröðunin fyrir HM: Snýr aftur 20 árum síðar
01.06.2026 11:00
Kraftröðunin fyrir HM: Gæti verið að byrja fyrir England
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



