Fotbolti.net
02.07.17 - 21:37
Matthías Freyr Matthíasson

Willum: Einn mesti skandall sem ég hef séð

Auglýsing
Willum Þór Þórsson.

Willum Þór Þórsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Borgun
„Þetta verður ekkert sárara en þetta, sérstaklega í ljósi frammistöðunnar,\" sagði Willum Þór Þórsson, þjálfari KR, eftir 3-2 tap liðsins gegn Stjörnunni í Borgunarbikarnum í dag. Guðjón Baldvinsson skoraði sigurmarkið á lokasekúndunum.

„Í seinni hálfleik var bara eitt lið á vellinum. Það eina sem Stjarnan bauð upp á sinni taugaveiklun var að bomba fram á Gaua (Guðjón Baldvinsson) og vonast til að ná seinni bolta. Þeir fóru niður í völlinn í hvert einasta skipti og fengu yfirelitt aukaspyrnu.\"

„Við vorum að keyra yfir þá og sundurspila þá. Ég hafði mjög góða tilfinningu að fara í framlengingu og valta yfir þá en þeir hafa Guðjón sem kláraði þetta. Ég óska þeim til hamingju með það en þetta var ekki sanngjarnt.\"
Stjarnan skoraði á upphafssekúndum leiksins en þar voru KR-ingar mjög ósáttir við Þorvald Árnason dómara. Ástæðan var sú að nokkrir leikmenn Stjörnunnar voru mættir á vallahelming KR áður en miðjan var tekin.

„Við verðum að taka einhverja ábyrgð á því. Guð minn almáttugur, framkvæmd leiksins í byrjun, er einn mesti skandall sem ég hef séð. Þeir fara í klassíska byrjun með því að fleygja þremur mönnum upp í hornin. Síðan stoppar Þorvaldur og lætur þá byrja aftur án þess að þeir þyrfu að skila sér til baka. Þeir þrýsta boltanum upp og við erum með þrjá menn í fanginu í byrjun leiks. Þetta er hneysa og á ekki að sjást.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.