Spænska félagið Real Betis hefur náð samkomulagi við Fluminense um kaup á brasilíska sóknarmanninum Luiz Henrique.
Henrique er 21 árs gamall hægri kantmaður en getur einnig leikið fremst á vellinum.
Leikmaðurinn steig sín fyrstu skref með Fluminense fyrir tveimur árum og hefur síðan þá spilað 116 leiki og þá komið að 27 mörkum.
Henrique er nú farinn frá Brasilíu og klár í stökkið til Evrópu en Real Betis staðfesti kaupin á honum í gær.
Brasilíumaðurinn gerir sex ára samning við Betis og er kaupverðið 7 milljónir evra.
Betis vann spænska konungsbikarinn á síðasta tímabili og hafnaði þá í 5. sæti deildarinnar.
Athugasemdir