Jamie Carragher tjáði sig opinberlega á Twitter um Cristiano Ronaldo í dag og hefur vakið mikil viðbrögð. Ronaldo hefur beðið um að vera seldur frá Manchester United og hefur Carragher sterka skoðun á því.
Þessi sparkspekingur og fyrrum leikmaður Liverpool heldur því fram að Ronaldo hafi gert nákvæmlega það sem hann bjóst við hjá Rauðu djöflunum.
„#Ronaldo gerði nákvæmlega það sem ég hélt, hann skoraði mörk en gerði liðið verra," skrifaði Carragher.
„Þessi sölubeiðni drepur líka þá hugmynd að hann hafi hafnað Man City útaf ást sinni og tryggð við Man Utd 😂."
#Ronaldo did exactly what I thought he would do, score goals but make the team worse. The transfer request also kills the idea he turned down Man City because of his love for Man United 😂 https://t.co/X7Xw9uRnm4