Enska B-deildarfélagið Hull City hefur fest kaup á tyrkneska miðjumanninum Özan Tufan frá Fenerbahce. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hull.
Tufan var á láni hjá Watford fyrri hluta síðustu leiktíðar en tókst engan veginn að finna sig í ensku úrvalsdeildinni og var lánssamningnum rift í byrjun ársins.
Hann þótti eitt sinn einn efnilegasti leikmaður Tyrklands og var orðaður við stærstu félög heims fyrir sex árum síðan en hann hefur ekki alveg náð að halda sömu hæðum síðan þá.
Tufan er nú mættur í ensku B-deildina og hefur skrifað undir þriggja ára samning við Hull City.
Tyrkinn á 65 landsleiki fyrir þjóð sína og hefur skorað í þeim 9 mörk.
Athugasemdir