Það voru áhugaverð tíðindi að berast frá Barcelona þar sem Joan Laporta forseti félagsins neitar því að Frenkie de Jong sé til sölu.
Barca hefur verið í viðræðum við Manchester United um möguleg félagaskipti De Jong. Fjölmiðlar segja að viðræðurnar um kaupverð séu komnar á lokastig og líklegt að samkomulag náist.
Þrátt fyrir þessa þróun heldur Laporta því fram að De Jong sé ekki til sölu en bendir á að miðjumaðurinn gæti þurft að taka launalækkun á sig til að vera áfram.
„Það eru mörg félög sem vilja hann, ekki bara Man Utd. Við höfum engan áhuga á að selja leikmanninn og hann vill vera áfram hjá okkur," sagði Laporta.
„Ég ætla að gera allt í mínu valdi til að halda Frenkie, en við þurfum að endurskoða samninginn."
Athugasemdir