Ítalska félagið Napoli hefur gengið frá kaupum á Khvicha Kvaratskhelia en hann kemur frá Dinamo Batumi í Georgíu.
Kvaratskhelia er 21 árs gamall sóknarsinnaður miðjumaður og var lengi vel eftirsóttur af þýska stórliðinu Bayern München.
Hann spilaði þá með Rubin Kazan í Rússlandi og var með bestu mönnum deildarinnar áður en hann yfirgaf félagið í kjölfar innrásar Rússa inn í Úkraínu.
Leikmaðurinn fór aftur til heimalandsins og spilaði með Batumi þar sem hann fór á kostum og skoraði átta mörk í ellefu leikjum.
Napoli hefur nú fest kaup á Kvaratskhelia og gerir hann fimm ára samning við félagið.
Welcome Khvicha 👋
— Official SSC Napoli (@sscnapoli) July 1, 2022
💙 #ForzaNapoliSempre pic.twitter.com/f9WjK8huGB
Athugasemdir