Fotbolti.net
02.07.23 - 22:00
Daníel Darri Arnarsson

Guðni Þór: Þarf ekki alltaf að vera tiki taka

Auglýsing
Guðni Þór: Þarf ekki alltaf að vera tiki taka
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz

,Mér líður vel, þetta var frábær leikur hjá stelpunum og virkilega góð frammistaða frá öllum. Allar komu með framlag í dag og virkilega flottur sigur," sagði Guðni Þór Einarsson þjálfari HK eftir 2-5 sigur á Augnabliki í kvöld.

„Augnablik hafa hörku stelpur og hafa gert okkur erfitt hingað til gerðum jafnteli við þær í fyrsta leik í mótinu þannig við ætlum ekki að gera sömu mistök aftur mætum bara dýr vitlaus til leiks og ekkert annað en sigur kom til greina í dag á móti bara flottu liði". 

Emily skorar svakaleg tvö mörk er þetta einhvað sem hún er góð í að gera á æfingum? 

„Hún er með alveg svakalegan fót og getur sett boltan upp í skeitin þegar hún vill sko en hún er með gríðarlegar spyrnur og frábæra sendingagetu virkilega gaman að sjá hana skora aukaspyrnu og horni í dag og var sí ógnandi og stýrði spilinu vel og fleiri líka, mjög ánægður með mörkin sem Brookelynn skorar eftir sendingar frá kristínu þær mynda einhvað eitrað combo í þessu þarf ekki alltaf að vera tiki taka allar leiðir stundum er nóg að sitja boltan bara yfir pakkan".

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.