Fotbolti.net
02.08.13 - 23:00
Brynjar Ingi Erluson

Borja Lopez til AS Monaco (Staðfest)

Borja Lopez til AS Monaco (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Franska stórveldið AS Monaco hefur fest kaup á spænska varnarmanninum Borja Lopez, en hann kemur frá Sporting Gijon.
Borja, sem er 19 ára gamall, gerði fjögurra ára samning við Monaco, en kaupverðið er talið nema um 2,2 milljónir evra.

Hann spilaði 19 leiki með Sporting Gijon í spænsku fyrstu deildinni í fyrra, en hann á þá einnig leiki að baki með U19 ára liði Spánverja.

Hann spilaði hvern einasta leik fyrir U19 ára landslið Spánar í Evrópumótinu sem fór fram í Litháen á dögunum, þar sem Spánn féll úr keppni eftir að hafa tapað fyrir Frökkum í undanúrslitum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.