Fotbolti.net
02.08.13 - 15:00
Brynjar Ingi Erluson

Emre Can til Bayer Leverkusen (Staðfest)

Emre Can til Bayer Leverkusen (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Þýska liðið Bayer Leverkusen hefur fest kaup á Emre Can frá Bayern Munchen, en hann gerir fjögurra ára samning við félagið.
Emre, sem er 19 ára gamall, er einn efnilegasti leikmaður Þýskalands, en honum hefur þó ekki tekist að blómstra hjá Bayern Munchen og fékk afar fáa sénsa þar og spilað einungis fjóra deildarleiki.

Hann hefur ákveðið að söðla um og hefur Bayer Leverkusen nú keypt piltinn frá Munchen, en hann gerir fjögurra ára samning við félagið. Munchen hefur þó rétt á að kaupa hann aftur til félagsins síðar.

Hann á fjölmarga leiki að baki með yngri landsliðum Þýskalands, en hann hefur einnig val um að spila með tyrkneska landsliðinu þar sem hann á tyrkneska foreldra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.