02.08.13 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Joe Funicello til Jaro (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Joe Funicello hefur yfirgefið herbúðir Þórs og gengið til liðs við FF Jaro sem er í fjórða sæti í finnsku úrvalsdeildinni.
,,Ég er ángæður með að vera kominn aftur í finnsku úrvalsdeildina og ég get ekki beðið eftir að byrja að spila,\" sagði Joe.
Joe þekkir til í Finnlandi eftir að hafa leikið með IFK Mariehamn og VPS árið 2010 og 2011.
Þessi 25 ára gamli Bandaríkjamaður spilaði með Þór í fyrstu deildinni sumarið 2010 og hann kom síðan aftur til félagsins í fyrra.
Í sumar hefur Joe komið við sögu í níu leikjum í Pepsi-deildinni en hann hefur verið í byrjunarliði í stöðu hægri bakvarðar í síðustu leikjum liðisins.