Fotbolti.net
02.08.23 - 23:18
Hafliði Breiðfjörð

Maggi: [email protected] en þeir geta hringt sem vilja koma í Aftureldingu

Auglýsing
Magnús Már bíður við símann eftir leikmönnum sem eru tilbúnir að styrkja lið Aftureldingar en hann ætlar samt að vanda valið.

Magnús Már bíður við símann eftir leikmönnum sem eru tilbúnir að styrkja lið Aftureldingar en hann ætlar samt að vanda valið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin

„Fyrri hálfleikur var ekki góður hjá okkur, við vorum meira með boltann og stýrðum leiknum en ekki nálægt okkar besta og fengum á okkur klaufalegt mark," sagði Magnús Már Einarsson þjálfari Aftureldingar eftir 1 - 1 jafntefli gegn Gróttu í kvöld.

„Seinni hálfleikurinn byrjaði ekkert sérstaklega en svo tókum við leikinn gjörsamlega yfir síðasta hálftímann og mikilvægt að ná jöfnumarkinu. Við vissum að við myndum skora mark, við skorum alltaf og höfðum mikla trú á að við myndum ná því. Við náðum að skora í lokin og vont að leikurinn hafi ekki verið 2-3 mínútum lengri því við vorum alveg með leikinn og ég er viss um að ef við hefðum náð markinu fyrr þá hefðum við sett annað."

Það var eins og þið hafið dóminerað fyrir utan teiginn síðasta hálftímann en áttuð eiginlega ekki séns inni í teignum?
„Þeir vörðust vel, voru með 11 menn bakvið bolta og það er erfitt að brjóta þá niður. Við áttum stöður sem við hefðum geta gert betur úr, og við áttum skot og sóknir og vissum að markið myndi koma. Við höfðum trú allan tímann og það skilaði sér á endanum. Ég vissi að við myndum ná þessu marki sem mér fannst verðskuldað, en ég hefði verið til í að leikurinn hefði verið aðeins lengur, þá hefðum við geta sett annað."

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hvernig var spennustigið hjá þér þegar þið sóttuð svona á þá í lokin?
„Ég hafði bara trú allan tímann, og vissi að þeir myndu ná allavega einu marki. Ég hélt að þau yrðu tvö en ég vissi að við myndum ná að skora því trúin og liðsheildin er þannig í þessu liði. Markið kom aðeins of seint."

Ég sá að meira að segja þegar verið er að flauta lokaflautið ert þú að kalla á menn að hlaupa fram?
„Jájá, við vildum vinna leikinn. Við viljum alltaf meira og klára þetta en þetta fór svona í dag. Við tökum þetta stig og höldum áfram. Það eru sjö leikir eftir núna og við þurfum að halda vel á spöðunum og vera einbeittir og klára þetta. Næst er Grindavík í næstu viku."

Ég heyrði í stúkunni að fólk vildi fá Andra Frey Jónsson fyrr inná. Hefðirðu átt að setja meiri kraft fram á við fyrr í leikinn?
„Ég veit það ekki, Andri er frábær framherji og ég er heppinn að vera með tvo frábæra framherja í honum og Gauta (Arnór Gauti Ragnarsson). Mér fannst Gauti ógnandi og vildi ekki taka hann útaf og svo ákváðum við að bæta öðrum framherja í lokin og það skilaði sér á endanum. Við hefðum geta gert það fyrr en vildum heldur ekki vera opnir til baka og ákváðum að gera þetta svona og uppskárum jöfnunarmarkið."

Þú hefur oft verið með nokkra stráka í Bandaríkjunum í námi, ertu að missa marga núna?
„Óli Beck er farinn og Georg (Bjarnason) mun fara á næstu vikum. Annars erum við með alla okkar menn og erum brattir. Frábær hópur og frábær liðsheild hjá okkur. Það kemur bara maður í manns stað og hefur alltaf verið þannig í sumar. Ef menn hafa dottið út hafa aðrir komið inn og stigið upp. Bjarni kom til dæmis inn í dag og skoraði jöfnunarmarkið, við erum með frábæran hóp sem stendur vel saman og það skiptir ekki öllu máli hverjir koma innn og hverjir byrja."

Svo ertu að missa mann út í meiðsli út tímabilið er það ekki?
„Mögulega er Sævar (Atli Hugason) frá út tímabilið, það er ekki alveg komið í ljós, en líklega er hann frá út tímabilið. Það gerist í öllum liðum að það komi áföll. Við erum með mikið stærri og breiðari hóp en undanfarin ár og getum brugðist við þessu. Ég er brattur, erum á fínum stað og höldum áfram."

Ertu búinn að hringja í stjórnina og segjast vilja fá fleiri leikmenn í glugganum?
„Nei nei, ég þarf ekkert að hringja í hana. Við erum að skoða en hvort það takist... þetta er erfiður gluggi. Ef góðir fótboltamenn vilja koma í Aftureldingu, þá getum við bætt við einum eða tveimur. Í ljósi þess að við erum að missa þessa gaura viljum við fá nýja menn í staðinn en það þurfa að vera réttu týpurnar, réttu karakterarnir og réttu leikmennirnir. Þetta þurfa að vera hörkugóðir leikmenn til að komast í hlutverk hjá okkur og þeir eru vandfundnir. Þeir eru yfirleitt að spila annarsstaðar ef þeir eru þetta góðir. Við erum að leita og erum með einhver járn í eldinum."

Ertu með sér netfang fyrir þessar umsóknir?
[email protected], en þeir geta hringt í mig ef þeir vilja koma í Aftureldingu. Ég tek alltaf símann ef góðir fótboltamenn vilja koma í Aftureldingu. En við veljum þá vel sem hafa komið. Það sýnir sig best á því að allir leikmenn sem komu í vetur hafa verið frábærir og skilað vel til okkar.Það er ekki sjálfgefið að leikmenn sem komi nýir inn standi sig svona vel eins og þeir sem hafa komið til okkar. Við þurfum að vanda valið vel og ef við fáum leikmenn þá eru það leikmenn sem við teljum geta hjálpað okkur að ná markmiðum okkar."

Hvar spila þeir þá á vellinum?
„Í þeim stöðum sem við erum að missa, við erum að missa mann af miðjunni, úr hægri bakverðinum og erum að missa hafsent. Þetta eru þrjár stöður, við erum með menn sem geta komið þarna inn en þurfum meiri breidd til að geta brugðist við skakkaföllum. Ef við finnum réttu mennina þá munum við bæta við einhverjum sem getur spilað þessar stöður, svo geta sumir leikmenn spilað allar þessar stöður."

Chriz Brazell þjálfari Gróttu var að spá í að reima á sig skóna, ert þú að spá í sama?
„Nei, það er alveg óþarfi. Enes aðstoðarþjálfari var í nuddi áðan, eitthvað slæmur í bakinu, en hann er samt líklegri en ég í augnablikinu. Mínir eru pikkkfastir uppi í hillu."

Sævar Atli Hugason gæti verið frá út tímabilið.

Sævar Atli Hugason gæti verið frá út tímabilið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Maggi: maggi@afturelding.is en þeir geta hringt sem vilja koma í Aftureldingu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.