Fotbolti.net
02.09.13 - 17:12
Daníel Freyr Jónsson
Ítalska deildin

Emiliano Viviano til Arsenal - Geta keypt hann að ári (Staðfest)

Emiliano Viviano.

Emiliano Viviano.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska 2. deildarliðið Palermo hefur staðfest á vefsíðu sinni að markvörðurinn Emiliano Viviano hafi verið lánaður til enska úrvalsdeildarliðsins Arsenal.

Viviano kemur til með að veita Wojciech Szczęsny samkeppni um markvarastöðu liðsins á tímabilinu.
Arsenal hefur rétt á að kaupa Viviano að lánssamningi loknum fyrir fyrirfram umsamda upphæð, en ekki er vitað hve há hún er.

Viviano er 27 ára gamall og lék hann með Fiorentina á síðustu leiktíð sem lánsmaður. Palermo hefur reynt að losna við hann í sumar þar sem laun hans eru of há fyrir félagið eftir að það féll úr Serie A á síðustu leiktíð.
Emiliano Viviano til Arsenal - Geta keypt hann að ári (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.