Fotbolti.net
02.09.13 - 22:18
Daníel Freyr Jónsson

Romelu Lukaku lánaður til Everton út leiktíðina (Staðfest)

Romelu Lukaku.

Romelu Lukaku.

Canon

Mynd: Getty Images

Belginn Romelu Lukaku er genginn í raðir Everton á lánssamningi frá Chelsea.

Everton hafði þar með betur í samkeppni við WBA, en Lukaku lék þar á síðustu leiktíð og leit fyrr í kvöld út fyrir að hann færi aftur þangað.
Belginn ungi staðfesti hinsvegar á Twitter-síðu sinni nú fyrir skömmu að hann hefði gengið frá lánssamningi við Everton og að hann verði þar út leiktíðina.

Lukaku fór á kostum með WBA á síðustu leiktíð og skoraði þá 17 mörk í 35 úrvalsdeildarleikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.