Fotbolti.net
02.09.13 - 08:53
Magnús Már Einarsson

Sakho og Ilori til Liverpool (Staðfest)

Mamadou Sakho.

Mamadou Sakho.

Canon

Mynd: Heimasíða Liverpool

Liverpool hefur fengið varnarmennina Mamadou Sakho og TIago Ilori í sínar raðir fyrir samanlagt 25 milljónir punda.

Sakho kemur til Liverpool frá PSG en Ilori kemur frá Sporting Lisabon í Portúgal.
,,Ég kem hingað því að verkefnið hjá Liverpool heillar mig. Ég hlakka til að spila minn fyrsta leik,\" sagði Sakho sem er fæddur árið 1990.

Liverpool hefur núna fengið sjö leikmenn í sumar en auk Sakho hafa Kolo Toure, Iago Aspas, Luis Alberto, Simon Mignolet og Aly Cissokho komið til félagsins.

Victor Moses gæti síðan bæst í hópinn í dag en hann er líklega einnig á leið til Liverpool frá Chelsea.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.