Fotbolti.net
02.09.13 - 21:53
Daníel Freyr Jónsson

Stephane Sessegnon dýrasti leikmaður í sögu WBA (Staðfest)

Stephane Sessegnon.

Stephane Sessegnon.

Canon

Mynd: Getty Images

WBA hefur staðfest kaupin á miðjumanninum Stephane Sessegnon frá Sunderland.

Sessegnon kemur fyrir 5,5 milljónir punda og er hann þar með orðinn dýrasti leikmaður í sögu WBA. Hann skrifaði undir þriggja ára samning.
Þessi 29 ára gamli mun klæðast treyju númer 29, en hann lék með Sunderland í tvö ár. Skoraði hann alls 17 mörk í 87 úrvalsdeildarleikjum fyrir svörtu kettina.

Victor Anichebe mun líklega fylgja Sessegnon til WBA á fljótlega, en Romelu Lukaku fer líklega ekki til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.