Fotbolti.net
02.09.13 - 17:00
Daníel Freyr Jónsson

Stephen Ireland lánaður til Stoke (Staðfest)

Stephen Ireland (fyrir miðju) á góðri stundu.

Stephen Ireland (fyrir miðju) á góðri stundu.

Canon

Mynd: Netið

Stephen Ireland er genginn í raðir Stoke City frá Aston Villa. Um er að ræða árslangan lánssamning.
Þessi 27 ára gamli miðjumaður lék 13 leiki með Villa á síðustu leiktíð og er ekki í plönum stjórans Paul Lambert.

Hann ákvað því að yfirgefa félagið og ganga í raðir Stoke þar sem hann mun fá fleiri tækifæri.

Ireland er írskur landsliðsmaður sem kom upp í gegnum unglingastarf Manchester City. Hann fór þaðan til Villa árið 2010 og hefur í heildina leikið 187 úrvalsdeildarleiki.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.