Fotbolti.net
02.09.13 - 23:06
Magnús Már Einarsson

Victor Anichebe til WBA (Staðfest)

Victor Anichebe til WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur keypt framherjann Victor Anichebe frá Everton.

Kaupverðið getur orðið allt að sex milljónir punda ef Anichebe stendur sig vel hjá WBA.

Steve Clarke, stjóri WBA, vildi styrkja framlínuna og hann reyndi einnig að fá Romelu Lukaku frá Chelsea.
Lukaku endaði hjá Everton og í kjölfarið fékk Anichebe leyfi til að fara til WBA. Aftur á móti varð ekkert af félagaskiptum Shane Long frá WBA til Hull.

Anichebe er 25 ára gamall en hann hefur leikið með Everton allan sinn feril og skorað 33 mörk í 168 leikjum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.