Fotbolti.net
02.09.22 - 20:43
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Áslaug Munda: Stór fótspor sem hún skilur eftir sig

Auglýsing
Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir.

Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Icelandair
„Þetta er góð tilfinning," sagði Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir eftir 6-0 sigur gegn Hvíta-Rússlandi í undankeppni HM í kvöld.

„Við vorum með yfirhöndina allan leikinn. Við vorum með leikinn allan tímann."
Áslaug Munda er einn efnilegasti leikmaður landsins en hún er komin inn í vinstri bakvörðinn hjá landsliðinu eftir að Hallbera Guðný Gísladóttir lagði skóna á hilluna.

„Ég veit alveg að ég þarf að laga varnarleikinn en það kemur með tímanum. Mér fannst þetta fínn leikur."

„Það er stórt (að fylgja í fótspor Hallberu). Þetta eru stór fótspor sem hún skilur eftir sig og ég reyni að gera mitt besta. Ég hef lært mjög mikið af Hallberu og er þakklát fyrir hana."

Það var vel mætt og góð stemning á vellinum.

„Mér finnst þetta mjög gaman, þetta er tilbreyting fyrir mig. Ég er þakklát fyrir allt fólkið sem mætti."

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.