Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 02. september 2022 20:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ísak Bergmann og Hákon Arnar saman á miðjunni í sigri
Félagarnir
Félagarnir
Mynd: Getty Images

Ísak Bergmann Jóhannesson og Hákon Arnar Haraldsson voru saman á miðjunni hjá FC Kaupmannahöfn í Íslendingaslag í dönsku deildinni í dag.


Liðið mætti Silkeborg en Stefán Teitur Þórðarson lék allan leikinn fyrir Silkeborg.

Þetta var fyrsti leikurinn í 8. umferð, tímabilið hefur farið illa af stað hjá meisturunum í FCK en liðið var með 9 stig eftir fyrstu sjö leikina.

Eina mark leiksins leit dagsins ljós undir lok fyrri hálfleiks þegar Victor Claesson skoraði fyrir FCK. Liðið er því komið með 12 stig og situr í 5. sæti eins og staðan er núna, stigi á eftir Silkeborg sem situr í 3. sæti.

Hákon var tekinn útaf í hálfleik en Ísak spilaði 80. mínútur.


Athugasemdir
banner