Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   fös 02. september 2022 22:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Karólína Lea vann 10 þúsund krónur af kærasta Glódísar
Icelandair
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Karólína Lea Vilhjálmsdóttir vakti athygli fyrir góða frammistöðu með landsliðinu á EM á Englandi. Hún er hins vegar ekki með liðinu í þessari viku vegna meiðsla.


Lestu um leikinn: Ísland 6 -  0 Hvíta-Rússland

Hún fylgdist þó með leiknum í kvöld en hún var virk á Instagram á meðan á leiknum stóð. Hún setti mynd í 'Insta story' þar sem hún sýnir samskipti sín við Kristófer Eggertsson sem er kærasti Glódísar Perlu Viggósdóttur.

Þar segist hún hand viss um að Glódís muni skora með skalla. Kristófer var greinilega ekki bjartsýnn fyrir hönd kærustu sinnar þar sem hann bauðst til að borga Karólínu Leu 10 þúsund krónur ef hún myndi skora með skalla.

Á 70. mínútu fékk Ísland hornspyrnu, Amanda Andradóttir tók hana og smellti boltanum beint á ennið á Glódísi sem skoraði.

Karólína á því inni tíu þúsund krónur hjá Kristóferi, en hún og Glódís eru liðsfélagar hjá þýska stórveldinu Bayern München.


Athugasemdir
banner
banner
banner