04.10.26 - 20:08
Ívan Guðjón Baldursson
Pjanic um Ronaldo: Heimtaði að taka allar aukaspyrnur

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Bosníski miðjumaðurinn fyrrverandi Miralem Pjanic, sem lék meðal annars fyrir Barcelona og Juventus á ferlinum, hefur deilt skemmtilegri sögu frá dvöl sinni hjá Juve.

TENGT EFNI
Pjanic hættur í fótbolta
Hann var samherji Cristiano Ronaldo frá 2018 til 2020 og segir frá því að hann hafi aldrei fengið að taka aukaspyrnur þrátt fyrir að vera einn besti aukaspyrnusérfræðingur ítölsku deildarinnar á þeim tíma.
Mikið hefur verið fjallað um Ronaldo á síðustu dögum eftir nýjasta frekjukastið hans þegar hann yfirgaf landsliðsbúðir Portúgal. Í gegnum tíðina hefur verið erfitt fyrir þjálfara að halda Ronaldo góðum en Pjanic rifjar upp bragð sem Massimiliano Allegri þáverandi þjálfari Juventus beitti í mikilvægum sigri liðsins gegn Napoli í mars 2019.
Pjanic og Ronaldo voru báðir í byrjunarliðinu og skoraði Pjanic fyrsta mark leiksins beint úr aukaspyrnu þrátt fyrir að Ronaldo hafi verið inni á vellinum á sama tíma.
„Ég er með smá sögu um þetta," sagði Pjanic og rifjaði upp tíma sinn með Ronaldo. „Einu sinni vorum við að spila í Napólí og ég skoraði úr aukaspyrnu, sem er mjög skrýtið út af því að Cristiano Ronaldo var líka í liðinu.
„Ronaldo vann aukaspyrnuna eftir brot Meret (Alex Meret, markvörður Napoli) sem fékk rautt spjald fyrir. Max Allegri sá Cris taka um hnéð á sér liggjandi á jörðinni og nýtti tækifærið til að senda sjúkrateymið inn.
„Aukaspyrnan var á frábærum stað svo hann nýtti tækifærið til að taka Cristiano af velli og leyfa mér að taka spyrnuna, og ég skoraði! Þetta var eina leiðin til að láta mig taka spyrnuna, svo takk fyrir það Max!"
Ronaldo skoraði aðeins úr einni aukaspyrnu af 72 sem hann tók á dvöl sinni hjá Juventus.