04.10.26 - 19:05
Ívan Guðjón Baldursson
Karólína Lea skoraði og klúðraði - Sveindís góð gegn toppliðinu

Mynd: Inter

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Inter

Síðustu leikjum dagsins er lokið hjá Íslendingunum sem keppa erlendis og komst Karólína Lea Vilhjálmsdóttir á blað í sigri Inter.
Karólína skoraði úr vítaspyrnu á útivelli gegn Como og var Cecilía Rán Rúnarsdóttir í markinu. Cecilía hélt hreinu í 0-2 sigri.
Karólína Lea fékk tækifæri til að skora annað mark þegar hún steig aftur á vítapunktinn á 78. mínútu, en brást bogalistin. Klúðrið kom sem betur fer ekki að sök.
Inter er búið að vinna fyrstu tvo leiki nýs deildartímabils 2-0 eftir að hafa endað í öðru sæti í fyrra með 44 stig úr 22 umferðum.
Sveindís Jane Jónsdóttir var þá í byrjunarliði Angel City sem heimsótti topplið Gotham í efstu deild í Bandaríkjunum.
Leikurinn var afar opinn og skemmtilegur þar sem bæði lið fengu nokkur dauðafæri til að skora. Heimakonur í liði Gotham fengu hættulegri færi og náðu forystunni á 66. mínútu.
Þær héldu forskotinu allt þar til í uppbótartíma, þegar Taylor Suarez náði að gera dramatískt jöfnunarmark tæplega tíu mínútum eftir innkomu sína af bekknum.
Lokatölur urðu 1-1 og er Angel City í 6. sæti með 43 stig eftir 27 umferðir. Átta efstu lið deildarinnar fara í úrslitakeppnina og er Angel City í góðri stöðu þegar aðeins þrjár umferðir eru eftir af tímabilinu. Liðið er þremur stigum fyrir ofan Seattle Reign sem situr í 9. sæti.
Sveindís Jane lék allan leikinn og var mjög lífleg. Hún skapaði mikla hættu en tókst ekki að skora. Hún er komin með 8 mörk og 3 stoðsendingar í 20 deildarleikjum á tímabilinu.
Como 0 - 2 Inter
0-1 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir ('63, víti)
0-1 Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, misnotað víti ('78)
0-2 Haley Bugeja ('83)
Gotham 1 - 1 Angel City
1-0 Jaedyn Shaw ('66)
1-1 Taylor Suarez ('91)