Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 02. nóvember 2022 10:12
Elvar Geir Magnússon
Ray Anthony og Alexander stýra Reyni Sandgerði (Staðfest)
Ray Anthony Jónsson.
Ray Anthony Jónsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Um miðjan október var Ray Anthony Jónsson ráðinn þjálfari Reynis í Sandgerði til næstu tveggja ára. Reynir endaði í 11. sæti 2. deildar í sumar og leikur í 3. deildinni á næsta ári.

Ray lék 336 leiki með Grindavík, Keflavík og GG á sínum ferli. Einnig á hann yfir 30 landsleiki fyrir Filippseyjar.

Á þjálfaraferlinum hefur hann þjálfað lið GG, meistaraflokk kvenna hjá Grindavík og núna síðast yngri flokka félagsins. Ray er með UEFA A þjálfararéttindi.

Alexander Magnússon verður aðstoðarþjálfari liðsins. Alexander er 33 ára Njarðvíkingur og á 182 leiki að baki í meistaraflokki með Njarðvík, Keflavík, Grindavík, Þrótti V. og Kórdrengjum. Hann hefur síðustu ár þjálfað 2. flokk Njarðvíkur ásamt því að sjá um styrktarþjálfun meistaraflokks.

Alexander verður Ray innan handar sem aðstoðarþjálfari Reynis en hann mun einnig sjá um styrktarþjálfun meistaraflokks.

„Ég er mjög ánægður með að taka þetta skref á mínum þjálfaraferli. Við Ray þekkjumst vel og höfum unnið saman áður sem þjálfarar hjá sameiginlegu liði 2. flokks hjá Njarðvík og Grindavík. Ég er spenntur fyrir því að hefjast handa og leggja mitt af mörkum til fótboltans í Sandgerði." sagði Alexander við heimasíðu Reynis.
Athugasemdir
banner
banner
banner