Fotbolti.net
02.12.23 - 23:39
Brynjar Ingi Erluson

Spánn: Rodrygo í rosalegu formi - Williams-bræður skoruðu í sigri Athletic

Rodrygo er sjóðandi heitur

Rodrygo er sjóðandi heitur

Canon

Mynd: EPA

Brasilíski vængmaðurinn Rodrygo var enn og aftur á skotskónum með Real Madrid er liðið vann Granada, 2-0, í La Liga á Spáni í dag.
Rodrygo hefur komið að ellefu mörkum í síðustu fimm leikjum sínum með Real Madrid í bæði La Liga og Meistaradeildinni.

Brassinn í fantaformi og hélt hann því áfram í dag með níunda marki sínu á tímabilinu er hann gulltryggði sigur Madrídinga.

Brahim Diaz skoraði fyrra markið á 28. mínútu en mark Rodrygo kom á 57. mínútu. Real Madrid er á toppnum með 38 stig, jafnmörg og Girona.

Bræðurnir, Inaki og Nico Williams, voru báðir á skotskónum í 4-0 sigri Athletic Bilbao á Rayo Vallecano. Osasuna og Real Sociedad gerðu þá 1-1 jafntefli í Pamplona.

Úrslit og markaskorarar:

Athletic 4 - 0 Rayo Vallecano
1-0 Gorka Guruzeta ('23 )
1-1 Alfonso Espino ('47 , sjálfsmark)
2-1 Inaki Williams ('64 )
3-1 Nico Williams ('68 )

Osasuna 1 - 1 Real Sociedad
1-0 Moi Gomez ('2 )
1-1 Umar Sadiq ('41 )

Real Madrid 2 - 0 Granada CF
1-0 Brahim Diaz ('26 )
2-0 Rodrygo ('57 )

La Liga - karlar

#LiðLmunStig
1Barcelona11+3430
2Atletico Madrid11+1428
3Real Madrid11+1827
4Betis11+323
5Real Sociedad11019
6Sevilla11-217
7Athletic10+415
8Deportivo11+114
9Villarreal11012
10Celta11012
11Alaves11-212
12Vallecano10-512
13Getafe11-812
14Espanyol11-111
15Osasuna11-1111
16Racing Santander11-1411
17Elche11-410
18Levante11-510
19Valencia11-99
20Malaga11-135
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.