Man Utd með augastað á Tchouameni - Diomande efstur á óskalista Liverpool
   mán 02. desember 2024 11:31
Elvar Geir Magnússon
Ofurtölvan komin með Liverpool í 85% - „Sé enga veikleika“
Ofurtölva Opta telur að líkurnar á því að Liverpool verði Englandsmeistari séu komnar upp í 85,1%. Liverpool vann sannfærandi 2-0 sigur gegn Manchester City í gær.

Ofurtölvan telur að 9,8% líkur séu á því að Arsenal verði meistari, Manchester City 4,4% og Chelsea fær 0,8%.

Aðeins tvisvar áður hefur lið verið með níu stiga forystu eða meira á toppi ensku úrvalsdeildarinnar eftir þrettán umferðir; Manchester United 1993 og Chelsea 2005. Bæði lið unnu titilinn.

„Vandamálið fyrir þau lið sem eru að elta Liverpool er að ég sé toppliðið ekki vera með neina veikleika sem stendur. Ef ríkjandi meistarar eru ekki að fara að ná þeim, hvaða lið getur barist við þá? Jólatörnin er handan við hornið en mér sýnist Liverpool hafa breiddina til að ráða vel við hana," segir sparkspekingurinn og gamli markahrókurinn Alan Shearer.

„Síðustu daga hefur Liverpool spilað gegn Real Madrid og Manchester City, sem hafa verið á toppnum í evrópskum fótbolta. Liverpool vann báða leiki sannfærandi."

„Þeir eru grjótharðir varnarlega og liðið verst sem ein heild. En það heldur áfram að skapa fjölda færa og eru hættulegir í föstum leikatriðum. Þeir standa fyrir allt sem þú vilt sjá frá fótboltaliði."
Enski boltinn - Hvers konar vél er hann eiginlega búinn að smíða?
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 33 21 7 5 63 26 +37 70
2 Man City 32 20 7 5 65 29 +36 67
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 33 17 7 9 47 41 +6 58
5 Liverpool 33 16 7 10 54 43 +11 55
6 Brighton 34 13 11 10 48 39 +9 50
7 Chelsea 34 13 9 12 53 45 +8 48
8 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
9 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
10 Everton 33 13 8 12 40 39 +1 47
11 Sunderland 33 12 10 11 36 40 -4 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 32 11 10 11 35 36 -1 43
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 33 9 9 15 36 45 -9 36
17 West Ham 33 8 9 16 40 57 -17 33
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 33 4 8 21 34 67 -33 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner