Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 03. janúar 2018 17:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Gunnhildur Yrsa til Utah Royals (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðskonan Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir er gengin í raðir bandaríska liðsins Utah Royals.

Frá þessu greindi félagið fyrir nokkrum mínútum. Gunnhildur hefur strax fengið skemmtilegt gælunafn en á vefsíðu Utah er hún kölluð Gunnhildur "Gunny"; ekki ósvipað bardagakappanum Gunnari Nelson sem er alltaf kallaður Gunnar "Gunni" Nelson.

Utah Royals er staðsett í Salt Lake City í Utah-fylki í Bandaríkjunum. Þetta er nýtt félag, en það var sett á laggirnar fyrir aðeins nokkrum dögum. Liðið mun leika í bandarísku kvennadeildinni í fyrsta sinn á komandi keppnistímabili.

Gunnhildur hefur frá árinu 2013 leikið í Noregi, á síðasta tímabili með Valerenga þar sem hún var fyrirliði á sínu fyrsta tímabili. Hún lék áður með Stabæk.

Utah ætlar sér stóra hluti á komandi tímabili og hefur samið við bandarískar landsliðskonur sem og Gunnhildi.

Gunnhildur Yrsa á 48 landsleiki fyrir Íslands hönd.

„Þetta var mjög spenn­andi til­boð sem fól í sér að spila í einni al­sterk­ustu deild heims. Það var erfitt að segja nei við þessu,“ sagði Gunn­hild­ur við mbl.is.

Dagný Brynjarsdóttir varð meistari með Portland Thorns í Bandaríkjunum á síðustu leiktíð. Ekki er enn víst hvort hún verði áfram með Portland á næstu leiktíð.



Athugasemdir
banner