Heimild: Thorsport.is
Það verður Helena Jónsdóttir sem mun leysa Bryndisí Láru Hrafnkelsdóttur af hólmi hjá Íslandsmeisturum Þórs/KA á næstu leiktíð. Frá þessu er greint á Thorsport.is í kvöld.
Helena er 23 ára gömul, markvörður og uppalin fyrir norðan hjá Þór/KA. Hún lék sinn fyrsta leik fyrir Þór/KA aðeins 15 ára gömul í 1. umferð Pepsí-deildar 9. maí 2009, daginn eftir afmælisdag sinn.
Helena er 23 ára gömul, markvörður og uppalin fyrir norðan hjá Þór/KA. Hún lék sinn fyrsta leik fyrir Þór/KA aðeins 15 ára gömul í 1. umferð Pepsí-deildar 9. maí 2009, daginn eftir afmælisdag sinn.
Alls á Helena 85 leik að baki með meistaraflokki og þar af 23 með Þór/KA í bikar, deild og Meistaradeild Evrópu 2011 og 2012 (4 leikir). Helena hefur einnig leikið með Fjölni, Völsungi og á síðasta tímabili stóð hún í marki Hamranna sem léku í 1. deildinni.
Helena mun eins og áður segir leysa Bryndísi Láru Hrafnkelsdóttur af hólmi hjá Íslandsmeisturunum. Bryndís Lára tók þá ákvörðun eftir síðasta tímabil að leggja hanskana á hilluna í einhvern tíma og snúa sér að frjálsum íþróttum.
Hin 26 ára gamla Bryndís var frábær í Íslandsmeistaraliði Þórs/KA síðasta sumar. Hún fékk einungis fimmtán mörk á sig og var á bekknum í liði ársins. Hún ákvað þó að skipta um íþrótt.
Sjá einnig:
Markvörður Íslandsmeistarana í hlé - Skiptir yfir í frjálsar íþróttir
Auk þess að semja við Helenu í kvöld gekk Þór/KA frá samningum við Heiðu Ragney Viðarsdóttur, Huldu Ósk Jónsdóttur og Láru Einarsdóttur.
Heiða Ragney Viðarsdóttir er 21 árs gömul og spilar sem miðjumaður. Heiða hóf meistaraflokksferilinn með Þór/KA sumarið 2011 og á 53 leiki að baki með liðinu. Heiða Ragney hefur stundað nám í Bandaríkjunum (University of North Carolina at Grieensboro) undanfarin þrjú ár og spilað þar við góðan orðstír.
Varnarmaðurinn Lára Einarsdóttir er á 23 ára gömul hefur verið einn af burðarásum liðsins undanfarin ár. Lára hóf meistaraflokksferilinn 2010 og á hún 144 leiki að baki með Þór/KA og í þeim leikjum hefur hún skorað 7 mörk.
Sóknarmaðurinn Hulda Ósk Jónsdóttir er 21 árs og á að baki 96 meistaraflokksleiki og 27 mörk. Hún hóf meistarflokksferlilinn með Völsungi 2012 en hélt svo til KR og lék með Vesturbæjarliðinu 2014 og 2015. Því næst fór hún til Þórs/KA. Hulda hefur leikið 41 leik með Þór/KA í deild og bikar og skorað í þeim leikjum 11 mörk.
Allir leikmennirnir skrifuðu undir tveggja ára samninga við Akureyrarliðið.
Athugasemdir