banner
   mán 03. febrúar 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Milos Peric tekur fjórða tímabilið með Fjarðabyggð
Milos Peric.
Milos Peric.
Mynd: Fjarðabyggð
Fjarðabyggð hefur samið við markmanninn Milos Peric um að leika með liðinu næsta sumar.

Peric er 29 ára og hefur spilað með Fjarðabyggð þrjú síðustu sumur og spilað samtals 69 leiki.

Við undirskrift samnings hafði Helgi Freyr Ólason Formaður Fjarðabyggðar þetta að segja: „Það er gríðarlegur styrkur fyrir liðið að halda Milos. Það var mikill áhugi á honum eftir frábæra frammistöðu hans hjá okkur. Það skal engan undra að við séum afar áægðir enda einn besti markvörður deildarinnar, ef ekki sá besti."

Fjarðabyggð hafnaði í níunda sæti 2. deildar á síðasta tímabili.


Athugasemdir
banner
banner