Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
   þri 03. febrúar 2026 19:45
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Sindri tjáir sig: Ákvörðun sem ég og Guðrún tökum þegar að því kemur
Sindri Kristinn.
Sindri Kristinn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Guðrún Arnardóttir.
Guðrún Arnardóttir.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sindri Kristinn Ólafsson, markmaður Keflavíkur, hefur svarað fyrirspurn Fótbolta.net varðandi mögulega flutninga hans til Svíþjóðar.

Sigurður Gísli Bond, einn af sérfræðingum Dr. Football sagði frá því á X í dag að Sindri væri að flytja til Svíþjóðar þar sem kærasta hans, landsliðskonan Guðrún Arnardóttir, spilar með Hammarby.

Fótbolti.net sendi fyrirspurn á Sindra vegna færslunnar. Sindri var spurður út í meinta flutninga til Svíþjóðar.

„Ég hef verið að spila alla leiki fyrir Keflavík seinasta árið og núna seinast bara á föstudaginn. Kærastan mín var vissulega að skrifa undir í Svíþjóð og í drauma heimi gætum við búið saman en lífið er ekki svona einfalt."

„Þetta er bara ákvörðun sem við Guðrún tökum þegar að því kemur."

„Ég er með fullan fókus á Keflavík og held að allir í teyminu geti staðfest það að ég hef verið með hugann við verkefnið,"
segir Sindri.

Keflavík er að endurheimta Ásgeir Orra Magnússon eftir að hann sleit krossband síðasta vor.
Slapp
banner