Grótta er búið að staðfesta komu Axels Sigurðarsonar til félagsins frá KR. Axel skoraði þrjú mörk í þrettán leikjum á láni hjá Gróttu í fyrra.
Axel, sóknarmaður fæddur 1998, skrifar undir tveggja ára samning við Seltirninga.
Axel hefur komið við sögu í fimm leikjum í efstu deild með KR og tveimur bikarleikjum. Þá hefur hann leikið á láni hjá HK og ÍR í Inkasso-deildinni.
Axel spilaði með UNC Charlotte í bandaríska háskólaboltanum síðasta haust og vetur.
Sóknarmaðurinn Axel Sigurðarson hefur skrifað undir tveggja ára samning við Gróttu. Axel spilaði mikilvægt hlutverk í Gróttuliðinu síðasta sumar en þá spilaði hann 13 leiki fyrir félagið og skoraði í þeim þrjú mörk. Öflugur sóknarmaður sem mikils er vænst af. pic.twitter.com/sJuY6LQ3nq
— Grótta knattspyrna (@Grottasport) March 3, 2020
Athugasemdir