Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   lau 03. apríl 2021 21:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Belgía: Aron gerði Kolbeini greiða
Aron Sigurðarson.
Aron Sigurðarson.
Mynd: Getty Images
Aron Sigurðarson var í byrjunarliði Union Saint-Gilloise í kvöld þegar liðið vann heimasigur í belgísku B-deildinni í kvöld. Saint-Gilloise tók á móti RFC Seraing sem er í öðru sæti deildarinnar.

Staðan var markalaus í hálfleik en snemma í seinni hálfleiknum tók Saint-Gilloise forystuna.

Þeir innsigluðu svo sigurinn í uppbótartímanum en þá var Aron farinn af velli. Hann var tekinn út af eftir tæplega 70 mínútna leik.

Aron og félagar eru komnir upp um deild en þeir gerðu öðru Íslendingaliði greiða með þessum sigri. Lommel er í þriðja sæti deildarinnar, fimm stigum frá RFC Seraing. Kolbeinn Þórðarson leikur með Lommel sem á leik til góða á liðið í öðru sæti. Liðið sem hafnar í öðru sæti fer í umspil um sæti í úrvalsdeild.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner