Fotbolti.net
03.04.21 - 15:59
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

England: Leeds upp á efra skiltið

Harrison renndi boltanum framhjá Ramsdale. Hann átti svo fyrirgjöfina sem fór af Jagielka og í netið.

Harrison renndi boltanum framhjá Ramsdale. Hann átti svo fyrirgjöfina sem fór af Jagielka og í netið.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds 2 - 1 Sheffield Utd
1-0 Jack Harrison ('12 )
1-1 Ben Osborn ('45 )
2-1 Phil Jagielka ('49 , sjálfsmark)
Leeds var rétt í þessu að sigra Sheffield United með því að skora tvö mörk gegn einu marki gestanna.

Jack Harrison skoraði fyrra mark Leeds á 12. mínútu eftir góða sendingu frá Raphina. Harrison skoraði með skoti í vinstra markhornið. Harrison er á sínu þriðja tímabili Leeds og hefur aldrei skorað meira á leiktíð með félaginu (sjö mörk).

Ben Osborn jafnaði leikinn á annarri mínútu uppbótartíma fyrir Sheffield þegar hann fylgdi á eftir frákasti.

Strax í upphafi seinni hálfleiks varð gamla brýnið, Phil Jagielka, fyrir því óláni að skora sjálfsmark og koma Leeds í 2-1. Jagielka ætlaði að fara fyrir fyrirgjöf en boltinn fór af honum og í netið.

Þeir Rhian Brewster og Oliver Burke fengu sénsa fyrir Sheffield undir lok seinni hálfleiks en tókst ekki að nýta þá.

Leeds fer með sigrinum upp fyrir Aston Villa og í 10. sætið. Sheffield er áfram í botnsætinu og það styttist alltaf í (Staðfest) á að liðið sé fallið.

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal9+924
2Man City9+1021
3Brighton9+1719
4Chelsea9+416
5Liverpool9+215
6Brentford9+714
7Everton9013
8Bournemouth9+112
9Tottenham9012
10Aston Villa9-312
11Hull City9+111
12Leeds9+111
13Newcastle9-311
14Ipswich Town9-411
15Fulham9-29
16Coventry9-79
17Man Utd9-57
18Crystal Palace9-127
19Nott. Forest9-66
20Sunderland9-105
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.