Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 03. apríl 2021 18:35
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spánn: Ekki hægt að mæla með áhorfi á leiki Osasuna
Osasuna hefur gert þrjú markalaus jafntefli í röð.
Osasuna hefur gert þrjú markalaus jafntefli í röð.
Mynd: Getty Images
Osasuna 0 - 0 Getafe

Osasuna og Getafe gerðu markalaust jafntefli í lokaleik dagsins í spænsku úrvalsdeildinni.

Eins og staðan er akkúrat núna þá var lítið undir í þessum leik þar sem bæði lið eru rétt fyrir neðan miðja deild.

Þetta var ekki mjög skemmtilegur leikur. Osasuna var meira með boltann (58%) en Getafe átti sex marktilraunir gegn fjórum tilraunum Osasuna. Engin þeirra rataði í netið og það voru engin mörk skoruð.

Þessi tvö lið sitja í 13. og 14. sæti deildarinnar; Osasuna er með 31 stig og Getafe er með 30 stig. Getafe er sex stigum frá fallsvæðinu. Osasuna hefur núna gert þrjú markalaus jafntefli í röð.

Önnur úrslit í dag:
Spánn: Real heldur góðri pressu á Atleti
Athugasemdir
banner
banner