Heimild: Fotbollskanalen
Sænski miðillinn Fotbollskanalen tók saman lista yfir tíu bestu félagaskipti sænskra liða í kvennaboltanum fyrir tímabilið. Tveir Íslendingar eru á listanum.
Hin 17 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir gekk til liðs við Hacken frá FH og hún hefur svo sannarlega stimplað sig vel inn.
Hin 17 ára gamla Thelma Karen Pálmadóttir gekk til liðs við Hacken frá FH og hún hefur svo sannarlega stimplað sig vel inn.
Hún er búinn að spila níu leiki fyrir liðið í deild, bikar og Evrópubikarnum. Hún hefur komið að fjórum mörkum með beinum hætti.
María Catharina Ólafsdóttir Gros spilaði með Linköping í efstu deild í Svíþjóð á síðustu leiktíð og skoraði sjö mörk og lagði upp þrjú í 26 leikjum en liðið féll.
Hún verður hins vegar áfram í efstu deild þar sem Djurgarden, sem hafnaði í 4. sæti í fyrra, keypti hana. Hún skoraði sitt fyrsta mark fyrir Djurgarden í 3-1 tapi gegn Hacken í bikarnum.


