Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mán 03. maí 2021 15:45
Elvar Geir Magnússon
Sveindís ekki eins lengi frá og óttast var
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveindís Jane Jónsdóttir verður frá í um sex vikur eftir að hafa meiðst í 1-0 sigri Kristianstad gegn Vaxjö í sænsku úrvalsdeildinni.

Eftir fjörutíu mínútna leik var Sveindís borin af velli vegna meiðsla en hún festi annan fótinn í gervigrasinu.

Óttast var að hún væri með slitið krossband og yrði frá í marga mánuði en nú hefur komið í ljós að meiðslin eru ekki það alvarleg.

Faðir hennar greindi frá þessum tíðindum á Facebook.

Sveindís er nítján ára landsliðskona og er hjá Kristianstad á lánssamningi frá Wolfsburg.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner