Gengur illa hjá FH á útivöllum - „Það er það sem við þurfum að finna út"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það er bara eins og alltaf, vonbrigði að tapa," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari FH eftir tap gegn KA í Bestu deildinni í kvöld.
„Þegar þú færð á þig fjögur mörk er erfitt að vinna. Við erum búnir að spila þrjá útileiki og skora sex mörk í þeim en fá á okkur tíu. Það segir sig sjálft að varnarleikurinn er ekki nógu góður þegar við förum á útivöll," sagði Heimir.
Hvað veldur slæmu gengi á útivelli?
„Það er það sem við þurfum að finna út. Við erum sjálfum okkur verstir, erum ekki að klára mennina okkar og erum að gera einföld mistök í varnarleiknum."
„Mér fannst við hafa góð tök á leiknum fyrstu 35 mínúturnar misstum þau svo í lokin og þeir skoruðu mark og það hjálpaði þeim í framhaldinu," sagði Heimir.






