Tindastóll sigraði Hamrana 3-0 í æfingaleik sem fór fram í Boganum í gær.
Tindastóll spilar í Lengjudeildinni í sumar og er spáð góðu gengi en liðið var í baráttu um að fara upp í Pepsi Max-deildina í fyrra.
Hamrarnir spila í 2. deild eftir að hafa fallið í fyrra.
Grindavík sigraði Hamar 2-0 í æfingaleik í Grindavík í gær en bæði þessi lið spila í 2. deild í sumar.
Hamrarnir 0 - 3 Tindastóll
0-1 Murielle Tiernan
0-2 Murielle Tiernan
0-3 Hallgerður Kristjánsdóttir
Grindavík 2 - 0 Hamar
1-0 Júlía Ruth Thasaphong
2-0 Una Rós Unnarsdóttir
Grindavík mætti Hamar í æfingaleik á Grindavíkurvelli í gær. Flottur 2-0 sigur hjá okkar stelpum.
— UMFG - Ungmennafélag Grindavíkur (@umfg) June 3, 2020
Júlía Ruth Thasaphong skoraði fyrra markið og Una Rós Unnarsdóttir skoraði með góðu langskoti í síðari hálfleik.
Næsti leikur gegn @framiceland í @mjolkurbikarinn!#umfg
💛💙 pic.twitter.com/FxuKMN4cM9
Veistu úrslit úr æfingaleikjum?
Ef þú hefur upplýsingar um úrslit æfingaleikja og markaskorara endilega sendu okkur þá tölvupóst á [email protected] eða settu úrslitin á Twitter og merktu #fotboltinet
Athugasemdir