Þýski markvörðurinn Loris Karius er að gera nýjan samning við Schalke eftir að hafa átt magnað tímabil á nýliðinni leiktíð.
Karius hefur verið aðalmarkvörður Schalke frá komu sinni á frjálsri sölu fyrir einu og hálfu ári síðan og átti hann stóran þátt í því að tryggja liðinu deildarmeistaratitilinn í næstefstu deild þýska boltans í maí.
Núverandi samningur Karius rennur út eftir eitt ár en á næstu dögum verður nýr samningur kynntur. Karius fær launahækkun og verður meðal launahæstu leikmanna liðsins við endurkomuna í efstu deild.
Karius lék áður fyrir Newcastle United og Liverpool á Englandi og er frægur fyrir að hafa gert slæm mistök á mikilvægum stundum. Í úrslitaleik Meistaradeildarinnar með Liverpool 2018 og í úrslitaleik deildabikarsins með Newcastle 2023.
Hann býr hins vegar yfir miklum gæðum og hefur sannað það í þýska boltanum eftir að hafa einnig náð góðum árangri Mainz og Besiktas á ferlinum.
12.06.2025 07:30
Karius framlengir við Schalke



