Man Utd gæti keypt Kalulu - Iraola gerir tveggja ára samning við Liverpool - Villa vill ekki missa Rogers
banner
   mið 03. júní 2026 08:05
Elvar Geir Magnússon
Endurhæfing Pedersen þyrnum stráð og ekki ljóst hvenær hann snýr aftur
Patrick Pedersen sleit hásin í bikarúrslitaleiknum í fyrra.
Patrick Pedersen sleit hásin í bikarúrslitaleiknum í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það sér ekki alveg fyrir endann á meiðslum markahróksins Patrick Pedersen hjá Val. Hann hefur verið frá í tæpa tíu mánuði eftir að hafa slitið hásin í tapinu gegn Vestra í bikarúrslitaleiknum á síðasta ári.

Í viðtali við RÚV var Patrick, sem er 34 ára, spurður út í það hvenær von væri á honum til baka.

„Það er erfitt að segja, mér líður mun betur. Endurhæfingin hefur verið erfið og þyrnum stráð. Ég fékk sýkingu í sárið og fór í aðra aðgerð fyrir átta vikum. En ég er að jafna mig, smám saman," segir Patrick sem hafði stefnt á það fyrir tímabilið að snúa aftur í lok maí.

Almarr Ormarsson íþróttafréttamaður á RÚV spyr hann þá hvort hann sé viss um að hann komi jafnsterkur til baka?

„Við skulum vona það. Tíminn leiðir það í ljós."

Í gær var tilkynnt að Pedersen var valinn besti erlendi leikmaðurinn í sögu íslensku deildarinnar, í vali sem RÚV stóð fyrir og ýmsir sparkspekingar tóku þátt í.
Slapp
banner
banner
banner