Newcastle United og Brighton eru í kappi um eftirsóttan framherja AIK sem er aðeins 18 ára gamall.
Sá heitir Zadok Yohanna og hefur verið að gera frábæra hluti í sænska boltanum. Hann var orðaður við sterk lið úr þýsku deildinni í vor en núna vilja úrvalsdeildarfélög fá hann í sínar raðir.
Yohanna er hægri kantmaður að upplagi og hefur komið með beinum hætti að 9 mörkum í 12 leikjum með AIK á nýju tímabili í Svíþjóð.
AIK vill fá 20 milljónir punda til að selja Yohanna sem á þrjú ár eftir af samningi við félagið.
Enskir fjölmiðlar hafa kallað hann hinn nýja Alexander Isak vegna þess að þeir eru báðir sóknarleikmenn sem koma úr röðum AIK.
21.04.2026 07:00
Ungur leikmaður AIK á óskalista þýskra stórliða




